Saga og sérstaða Loðnuvinnslunnar
Loðnuvinnslan h/f (LVF) var stofnuð á Fáskrúðsfirði 29. október 2001 og hóf rekstur hinn 1. janúar 2002. Rekstur fyrirtækisins varð til við samruna sjávarútvegshluta og iðnaðarstarfsemi Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og Loðnuvinnslunnar h/f., sem rak nýja fiskimjölsverksmiðju frá því í janúar 1996, en það félag var stofnað 20. september 1994.
Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga (KFFB) sem stofnað var 6. ágúst 1933 er því móðurfélag og aðaleigandi hins nýja fyrirtækis með 83,11% hlutafjár, en hluthafar voru alls 156 þann 31. desember 2021 og áttu þá 10 stærstu hluthafarnir 98,49% í félaginu.
LVF rekur fiskimjölsverksmiðju, frystihús, síldarsöltun og gerir út ísfisktogarann Ljósafell SU 70 og flottrolls- og nótaveiðiskipið Hoffell SU 80. Þá rekur LVF vélaverkstæði, rafmagnsverkstæði og trésmíðaverkstæði. Á árinu 2016 keypti dótturfélag LVF Hjálmar ehf línubát með veiðiheimildum frá Grindavík. Báturinn heitir Sandfell.
LVF starfrækir frysti- og kæligeymslu og ísframleiðslu með sjálfvirkri afgreiðslu.
Tilgangurinn með því að sameina þennan rekstur var m.a. að laga reksturinn að því félagsformi sem ráðandi er í dag og til að skapa starfseminni betri möguleika til þess að aðlaga sig að gjörbreyttu umhverfi í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja.
Félagið hefur á að skipa góðu starfsfólki sem langflest er heimamenn á Fáskrúðsfirði og því mjög stöðugt vinnuafl. LVF hefur góðan búnað til rekstrar, m.a. fiskimjölsverksmiðju, frystihús, síldarsöltun, auk vel útbúinna þjónustudeilda. Skipum félagsins hefur ávallt verið mjög vel við haldið.
Sagan í máli og myndum
Velkomin á heimasíðuna okkar
Þessu efni getur þú skipt út fyrir þinn eigin texta og myndir.
Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur. Ut enim ad minim veniam, quis nostrud exercitation ullamco laboris nisi ut aliquip ex ea commodo consequat. Duis aute irure dolor in reprehenderit in voluptate velit esse cillum dolore eu fugiat nulla pariatur