Veiðar

Útgerðin rekur tvö skip og einn bát: Uppsjávarskipið Hoffell, skuttogarann Ljósafell og línubátana Sandfell og Hafrafell. Hér geturðu fylgst með nýjustu fréttum af skipunum og skoðað hvar þau eru stödd.

Uppsjávarskipið Hoffell SU 80

Hoffell SU 80 er með 9 menn í áhöfn á trolli og 11 menn á nót. Skipið er smíðað 2008 í Danmörku, það er 75,5 m langt, 15,6 m breitt og er um 2530 BL. 
Hoffell veiðir uppsjávarfisk bæði til manneldis og mjöl- og lýsisvinnslu. Veiðarfæri eru flotvarpa og hringnót.
Hoffell SU 80 á siglingu í Fáskrúðsfirði

Núverandi staðsetning

Athugið að hér er verið að nota gögn frá þriðja aðila og Loðnuvinnslan getur ekki ábyrgst að staðsetning  Hoffells miðað við kortið sé alltaf rétt.

Skuttogarinn Ljósafell SU 70

Ljósafell SU 70 er með 15 menn í áhöfn. Skipið er smíðað 1973 í Japan en fór í umtalsverðar breytingar og endurbætur í Póllandi 1989 og aftur 2007. 
Skipið er 55,9 m langt, 9,5 m breitt og er um 844 BL, veiðir bolfisk sem er fyrst og fremst unninn í frystihúsi Loðnuvinnslunnar. Veiðarfæri er aðallega botnvarpa.
Mynd af Ljósafelli SU 70 á siglingu.

Núverandi staðsetning

Athugið að hér er verið að nota gögn frá þriðja aðila og Loðnuvinnslan getur ekki ábyrgst að staðsetning Ljósafells miðað við kortið sé alltaf rétt.

Línubáturinn Sandfell SU 75

Sandfell SU 75 er með 4 menn í áhöfn. Báturinn er smíðaður á Íslandi 2014, er 14,8 m langur, 5,6 m breiður og er um 29,6 BL.
Báturinn veiðir bolfisk sem er fyrst og fremst unnin í frystihúsi Loðnuvinnslunnar. Veiðarfæri er lína.
Sandfell SU 75 á siglingu inn Fáskrúðsfjörð

Núverandi staðsetning

Athugið að hér er verið að nota gögn frá þriðja aðila og Loðnuvinnslan getur ekki ábyrgst að staðsetning Sandfells miðað við kortið sé alltaf rétt.

Línubáturinn Hafrafell SU 65

Hafrafell SU 65 er með 4 menn í áhöfn.

Hér vantar uppfærðann texta um bátinn
Sandfell SU 75 á siglingu inn Fáskrúðsfjörð

Núverandi staðsetning

Athugið að hér er verið að nota gögn frá þriðja aðila og Loðnuvinnslan getur ekki ábyrgst að staðsetning  Hafrafells miðað við kortið sé alltaf rétt.
Leit